Það hefur nú margt áunnist síðan ég fann þetta snilldarprógram á netinu fyrir 4 mánuðum, ég byrjaði að hlaupa eftir þessu prógrami 14.september síðastliðinn og kláraði það í nóvember. Eftir að hafa klárað þetta þá gat ég hlaupið 5 km. á cirka hálftíma, þannig að þetta virkaði fyrir mig.
Hérna er slóðin inn á síðuna
http://www.c25k.com/Það góða við þetta prógram er að það er raunhæft og hæfilegt aukning milli vikna gerir það að verkum að maður nennir að halda áfram. Svo er það snilld hvernig maður hleður niður prógraminu á ipodinn og manni er sagt hvenær maður á labba og hvenær maður á að hlaupa(skokka).
Ég mæli eindregið með þessu sem fyrir þá sem hafa áhuga að fara að skokka, ég held að þeir sem fari stefnulaust út að hlaupa gefist oft upp fljótt því það er ekkert markmið með hlaupunum og fara og geyst af stað og gefast upp. Svo er líka mjög hvetjandi að fara í skokkhóp, þeir eru út um allt og það er hægt að finna á inni á heimasíðunni
www.hlaup.is
Árangurinn hefur ekki látið á sér standa, ég er farinn að hlaupa lengri vegalengdir og lengsta hlaupið mitt til þessa er 14,4 km og ætla ég að stefna á því að bæta við þá vegalengd hvern laugardag fram að hálfmaraþoninu sem ég ætla að taka þátt í apríl.
Ekki hefði mér dottið í hug að væri að stefna á þetta fyrir 4 mánuðum, þá fannst mér 10 km. rosalega langt, en nú er þetta raunhæft markmið og ég stefni ótrauður á það.
En ég verð að létta mig meira, er núna búinn að taka það af mér sem ég bæti við um jólin og er farinn að léttast aftur, langar að vera cirka 95 kg. í hálfmaraþoninu. En þarf að bæta í og sýna meira aga í mataræðinu. Stefni á prófa að hafa matardagbók í næstu viku og sjá hvaða áhrif það mun hafa á þyngdina, spennandi og ég ætla að hafa hana hér á síðunni. Ekkert kjaftæði.
Ég skellti mér í mjög fínt morgunhlaup í morgun, fór að heiman út á Álftanes, þetta mældist 9,2 km. og fór það á 52 mín. mjög sáttur við það. hitti svo fjölskylduna við sundlaugina á Álftanesi og skelltum okkur í sund, frábær sundlaug og synd að þessi frábæra laug sé að fara með fjárhag þeirra Álftnesinga.
En ég náði aftur að hlaupa 40 km. þessa viku mjög sáttur við það. Stefni að reyna að halda því.