Ég setti mér markmið að hreyfa mig sex sinnum í vikunni og það tókst næstum því.
Áætlun vikunnar:
Mánudagur. hlaupaæfing, Sprettir og rólegt hlaup með skokkhópnum. Stóðst.
Þriðjudagur. Vallarhringurinn minn á rólegu tempói. cirka á 36 mín. 5,9 km. Konan að vinna þannig að þetta náðist ekki.
Miðvikudagur. Styrktaræfing hjá Haukum. Kannski 3-4 km. hlaup. Stóðst 5 km. hlaup.
Fimmtudagur. Körfubolti. Yes
Föstudagur: Frí
Laugardagur. 12 km hlaup. með hópnum. Þetta stóðst.
Sunnudagur. Stutt en hratt hlaup og einhvers konar styrktaræfingar. 14,4 km, lengra hlaup en ég áætlaði. en fínt. tók nokkrar styrktaræfingar heima við.
Hérna er leiðin sem ég fór í dag, flott leið.
Samtals skokkaði ég 41,5 km þessa vikuna. mjög sáttur við það. Er að fara aðeins hægra yfir er að venja líkamann við þessar auknu lengdir. En þetta var rosalega næs og í þessu löngu hlaup fara vel í mig. hélt meðalpúlsinum undir 150 og þetta snérist ekkert um úthald heldur frekar hvað fæturnir þoldu.
Nú er það áætlun þessarar viku.
Mánudagur. Hlaupaæfing ef það verður ekki flughálka. annars finn ég eitthvað annað.
Þriðjudagur. morgunskokk, ef það verður ekki hálka, annars að skoða kvöldhlaup eftir frækinn sigur Íslands í Handboltanum.
Miðvikudagur: Opinn bók. einhver hreyfing.
Fimmtudagur. Körfubolti.
Föstudagur. Frí
Laugardagur: 15 km hlaup. hægt og rólegt.
Sunnudagur. Einhverjar styrktaræfingar og hlaup.
Stefni á 40 + km, vonandi stenst það.
Ætla að huga betur af mataræðinu og vonandi verður þetta góð æfingarvika.
Íþróttir
Heilbrigði