Átak Hlyns

barátta mín að komast í form

12.01.2011 23:28:34 / hlynur75

Nýtt ár og smá uppgjör

Ég hef ekki notað þessa síðu mikið, hún hefur í raun legið í dvala frá því í vor.
Ég er en í sama horfinu, náði flestum mínum markmiðum, sáttastur var ég í vor þegar ég kláraði fyrsta hálfmaraþonið og náði að fara undir tvær klst. Ég tók þátt í nokkrum hlaupum og var ég sáttur við þau flest þó svo að ég hafi stundum komið svekktur í mark. En ég náði einu markmiði sem mér fannst rosaleg fyrir ári síðan. þ.e. að fara undir 50 mín. í 10 km. hlaupi. Ég náði því í Kaldárhlaupinu í des. hérna í Hafnarfirði. 

En ég bögglast áfram á hlaupum og hef en ánægju af og eru hlaup orðin stór hluti af lífi mínu. Ég hef sem betur fer sloppið að mestu við meiðsli og hef ég bara fengið lítils háttar eymsli sem hafa í raun ekkert stoppað mig. 

Nú er nýtt ár hafið og ný markmið hafa fæðst. Ég ákvað í haust að skrá mig í maraþon og er skráður til leiks í Parísar maraþonið í apríl og hef því þrjá mánuði til þess að koma mér í form, ég hef verið nokkuð duglegur að hlaupa og er bara spenntur yfir átökum næstu mánaða. Ég hef reynt að fylgja prógrami sem ég fann á runnersword.com og vonandi skilar það mér standandi í mark í París. 

Alla vega ég byrjaður að blogga aftur og vonandi verð ég duglegri við það næstu misseri. 

þangað til næst;)

» 1 hafa sagt sína skoðun

23.04.2010 19:29:37 / hlynur75

Einn dagur í hálfmaraþonið.

Jæja nú styttist óðum í hlaupið og það er pínu spenna í manni, bæði kvíðinn og á sama tíma eftirvænting. Ég fer í þetta hlaup jákvæður og vonandi næ ég þessu markmiði mínu að hlaupa undir 2 klst. en ef það gengur ekki núna þá gengur það bara næst. 

Veðurspáin er bara ágæt og vonandi hefur veðrð ekki mikil áhrif á hlaupið. 

Það ætla 10 manna hópur úr skokkhópnum að hlaupa og þar af nokkrir sem ekki hafa hlaupið þessa vegalengd áður. Ég held að við eigum öll eftir að standa okkur með prýði því við erum öll að keppa við sjálfa okkur. 

En nú er bara að standa undir nafni og klára þetta markmið sem ég setti mér í janúar, svo sér maður til hvað maður gerir í kjölfarið á þessu og hvaða markmið maður setur sér. 

Over and out. 

» 1 hafa sagt sína skoðun

20.04.2010 21:23:36 / hlynur75

4 dagar í hálfmaraþonið.

Nú styttist óðum í hálfmaraþonið og ég er að gíra í þetta verkefni. Hef reyndar farið þessar vegalengdir en nú snýst þetta um tíma. En það markmið er að fara undir tvær klst, vonandi tekst það en þá verð ég að halda vel á spöðunum og vona að veðrið verði gott. Eins og spáin er núna þá lýtur út fyrir rigningu og smá golu, vonandi breytist þessi smá þegar nær dregur. 

Ég læt vita af mér hvernig gengur og vonandi verð ég ekki síðastur. :)

» 0 hafa sagt sína skoðun

12.04.2010 23:15:01 / hlynur75

Barningshlaup í roki og rigningu.

Það var ekki beint spennandi veður þegar litið var út um gluggann á laugardagsmorgun, Rok og rigning og ég ætlaði mér að taka síðasta langa hlaupið fyrir hálfmaraþonið. Ég var nú tvístígandi þegar ég kom inn í Haukahúsið sleppti drykkjarbeltinu og tók einungis einn lítinn vatnsbrúsa. En það var lagt af stað og haldið upp Áslandsbrekkurnar, þar tók við Setbergshringurinn og við Eiríkur og Gísli Heiðar vissum svo sem ekkert hvert við ættum að skokka. 

Veðrið var blautt og þónokkur vindur. Við vorum en í óvissu hversu langt við ætluðum. Ég stakk upp á að taka einn miðbæjarhring og aftur upp á Álfaskeið, þar lágu 10 km í valnum og við nokkuð sprækir og því lögðum við af stað í norðurbæinn og þar þræddum við stíga fram og til baka. furðulegt að skokka svona stefnulaust. 

En þá voru komnir rúmlega 14 km þannig að við fórum að fikra okkur í átt á Haukahúsinu, Fórum í gegnum Víðistaðatúnið og vesturgötuna niður í miðbæ, þá stóð valið milli Suðurgötu, þar sem beið okkur flott brekku eða Strandgatan með hvössum mótvindi. Valið varð Suðurgatan, ekki var farið hratt yfir, en einhvern veginn komst maður á  yfir hæðina og í átt að Suðurbæjarlauginni, þá beið en ein brekkan og hana tókum við skref fyrir skref og ég hef sjaldan verið jafn feginn og ég nálgaðist Reykjanesbrautina. En þá tók á móti okkur massamótvindur sem við mjökuðumst í gegn um og þessi barningur var á enda. 18,4 km í valnum og gott dagsverk á enda. 

Hérna er mynd af leiðinni. 

 Þetta hlaup fer í reynslubankann. Stefnulaust en skemmtilegt og þarna voru flest hverfi Hafnarfjarðar þrædd. En hvað gerum við ekki til þess að losna við rokið. 

Tek ofan fyrir Gísla sem skokkaði sitt langlengsta hlaup frá upphafi. Hann hafði lengst skokkað 12 km og að taka 18,4 km í þessu veðri er magnað. 


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.04.2010 21:12:58 / hlynur75

Uppgjör mars

Mars var flottur æfingarmánuður, gekk vel og hef næstum því verið algerlega meiðslalaus og bara sáttur við framistöðu mína, þó maður geti alltaf gert betur. 

Ég afrekaði að hlaupa tvisvar sinnum hálfmaraþon, 
Skokkaði 180 km sem er aukning um 20 km milli mánuða. 
Fór nokkrum sinnum í ræktina. Hefði kannski mátt fara oftar, en þetta var svo sem allt í lagi, 
Ég léttist um 2 kg í mánuðinum, þannig að þetta er allt á réttri leið. 

Nú styttist óðum í Hálfmaraþonið og maður er að gíra sig í hvernig maður ætlar að tækla það. 
Mig langar óskaplega að fara undir 2 klst. en vonandi tekst það en það er ekkert sjálfgefið. En ef það tekst ekki þá tekst það bara næst. Hlakkar mikið til að takast á þetta verkefni og svo er að sjá hvaða nýju markmið koma svo í kjölfarið. 

Ég er bara léttur og hress þessa dagana og sáttur við það sé að koma vor og dagurinn lengist með hverjum deginum. 



» 1 hafa sagt sína skoðun

31.03.2010 21:56:31 / hlynur75

jæja þá er maður búinn að prófa vormaraþonsleiðina

Tók æfingarhring fyrir vormaraþonið eftir rúmlega 4 vikur. Fórum 15 saman úr skokkhópnum  og prufuðum leiðina. þetta er skemmtileg leið og ég mæli með henni fyrir þá sem ekki hafa farið hana. það er farið frá Elliðadal meðfram ströndinni vestur í bæ og endað við Ægissíðu. Flott og slétt leið, ekki mikið af brekkum. 

Hlaupið gekk ágætlega, ég fór aðeins hægara en ég fór með Kalla svila fyrir hálfum mánuði. Fann en ég átti ekki mikla auka orku þegar leið á hlaupið, en hélt dampi og endaði að klára þessa 21,1 km á 2.11 það er allt í lagi en ég stefni á betri tíma eftir 4 vikur. Nú er komið páskafrí og þá er áætlunin að slaka á, en stefni á Píslarhlaupið á Föstudaginn Langa, sem er víst krefjandi 10 km. hlaup frá Geysi að Úthlíð, vonandi tekst mér að fara þá braut skammarlaust. 

Læt vita hvernig þessi barátta gekk. Hafið það sem best um páskana. 



» 0 hafa sagt sína skoðun

30.03.2010 08:20:05 / hlynur75

Ekki mikið að frétta svo sem EN.

Það er ekkert svo mikið að frétta, ég dröslast eitthvað áfram og er en á fullu í undirbúninginum fyrir hálfmaraþonið sem verður 24. apríl. 

Í dag ætlum við nokkur úr skokkhópnum að hittast í og prófa brautina sem er farin í hálfmaraþoninu, það verður spennandi og vonandi gengur vel.

Ég þurfti að taka 4 daga frí í síðustu viku, bæði vegna anna og kvefs sem ég þurfti nauðsynlega að losna við, það er að takast og ég finn mikinn mun milli daga. 

Ég fór t.d. á laugardaginn og skokkaði rúmlega 11  km og svo svipað á sunnudaginn og það munaði 13 slögum í meðalpúls og þetta sýnir að kvef hefur svaðaleg áhrif á hlaupin. 

Nú er bara að halda vel utan um hlaupin og taka aðeins til í mataræðinu þá ætti ég að klára þetta hálfmaraþon.

Svo er áætlunin að taka þátt í Píslarhlaupi á Föstudaginn langa. Það er hlaupið frá Geysi að Úthlíð.á að vera krefjandi hlaup og maður fer nú bara varlega í það hlaup. 

En annars er allt gott að frétta og ánægður að það sé byrjað að birta og að vera laus við snjóinn. 



» 0 hafa sagt sína skoðun

13.03.2010 16:58:38 / hlynur75

En og aftur lengsta hlaupið :) 21,7 km.

Jæja þá er ég búinn að klára fyrsta hálfmaraþonið mitt og rúmlega það. Fór með skokkhópnum, Ég fór með Kalla svila og við tókum flottan hring í Hafnarfirði, Álfanesi og Garðabæ. Hlaupið gekk nokkuð vel þó að ég hafi verðið þreyttur á köflum. Tók með mér pokasvala og svo fékk ég orkudrykki hjá Kalla. Þeir fóru vel í mig og hafa ábyggilega hjálpað mér síðustu kílómetara. Sem sagt kláraði ég hálfmaraþonið á 2:05:45 þannig og heildartíminn var 2:09:29 sem gerir rúmlega 10 km.meðalhraða. Veðrið var geggjað og það spilli ekki fyrir góðum degi og ég var bara aðeins mikið klæddur og dressa mig öðru vísi fyrir næsta hlaup. 

En það var mikil vellíðan að klára þetta og ég hefði ekki trúað að ég gæti þetta fyrir sex mánuðum síðan. En ef ég gét þetta þá getið þið þetta. En þetta er hægt, aðalatriðið er að halda sér við efnið og vera jákvæður. :)  En og aftur minnist ég á www.c25k.com sem er flott hlaupaprógram fyrir þá sem er að byrja. Ég kláraði það prógram og ég þakka raunhæfri áætlun sem gerði það að verkum að mér þótti gaman að hlaupa. En þetta kemur ekki að sjálfum sér og maður verður að halda sér við efnið.

En jæja þetta er fínt í bili og hér fylgir með mynd af leiðinni sem ég fór í dag. flott leið sem ég mæli með svolítið að brekkum sem er bara jákvætt. :)


Ásvellir,Garðabær, Álftanes, Hafnarfjörður.

» 5 hafa sagt sína skoðun

08.03.2010 20:53:02 / hlynur75

Flott byrjun á vonandi góðri æfingarviku.

; font-family: Verdana, Geneva, sans-serif; font-size: 11px; ">Frábær æfing með skokkhópnum, nú var Ásfjallið tæklað og flottir brekkusprettir.
Sem sagt upp Áslandið göngustígurinn hjá Kríuás, og meðfram hverfinu, og niður meðfram og til baka hjá Þrastarás og niður Áslandið yfir í Setbergið og og upp bröttu brekkuna í setberginu, út á Kaldárselveg. upp í nýja Áslandið og upp þar og teknir 3 sprettir og upp með hverfinu og sömu leið til baka. Flott æfing. Ég tók vel á því og er sáttur við byrjun þessari hlaupaviku. Ég ætla að vera duglegur þessa viku. Nú er bara að láta verkin tala og ég stefni á gott hlaup um helgina og hálft maraþon á laugardaginn ef veður gott. Vonandi verð ég í góðu formi og tekst þetta ætlunarverk. 

» 3 hafa sagt sína skoðun

04.03.2010 22:37:31 / hlynur75

Mars fer vel af stað.

Ég er sáttur við byrjunina á þessum mánuði. Ég hef ekki nennt að hlaupa úti í þessari ófærð því hef ég notast á við brettið í Hress. Þar er ég alltaf að auka hraðann og í gær setti ég persónulegt met í 5 km. hlaupi. hljóp það á 23.40 sem er svaka bæting hjá mér og í dag hljóp ég 10 km á 49.40 en það er nú ekki alveg að marka það því það er mun auðveldara að hlaupa á bretti en úti. En samt er þetta mikil bætinig frá því ég byrjaði. En það er samt alveg skelfilega leiðinlegt að hlaupa lengi á bretti og ég tek ofan á fyrir þeim sem geta hangið á því lengur en 60 mín. En maður  verður að notast á við þetta þegar færðin er eins og hún er núna. En ég ætla að fara lengra á laugardaginn. Vonandi verður veðrið betra en spáð er. 

» 1 hafa sagt sína skoðun

04.03.2010 22:32:04 / hlynur75

Uppgjör Febrúar.

Þetta var fínt æfingarmánuður. Ég hreyfi mig 25 daga af 28 dögum, það hlýtur að teljast góður árangur að gera eitthvað næstum því á hverjum degi í febrúar. Mjög ánægður með það.

Ég náði hlaupamarkmiði mínu, það var að hlaupa aldrei minna en 40 km. á viku og 160 km. í mánuðinum. Það tókst og 167,1 km að baki  og það því markmiði var náð. 

Ég hef bætt svolítið við í lyftingunum og fór á meðaltali 2-3 í viku og lyfti og gerði styrktaræfingar. 

Svo er það körfuboltinn hann er alveg frábær viðbót við þetta allt saman og er bara hin besta skemmtun. 

ég náði af mér cirka 2 kg í þessum mánuði og hef og örugglega styrktst þónokkuð. Ég þarf að komast í mælingu, hef ekki farið í svoleiðis síðan í des. 

Nú styttist óðum í hálfmaraþonið og ég þarf að halda vel utan um hlaupin til að ná settu marki. 

Markmiðið er að auka aðeins hlaupamagnið og bara í raun halda áfram á þeirri braut sem ég er á. 
þarf að létta mig meira og ætla að vera kominn úr póstnúmerastærð eins fljótt og auðið er, en það styttist óðum í það. 

En alla vega er ég hvergi nærri hættur og held ótröður áfram á þessari vegferð minni. 

Þakka en og aftur fyrir stuðninginn sem ég hef fengið frá ykkur. Hann er ómetanlegur.

Endilega að kommenta alltaf gaman að fá kveðjur og bara að vita hver að fylgjast með þessari baráttu minni.

» 1 hafa sagt sína skoðun

27.02.2010 13:10:27 / hlynur75

Vetrarhlaup í léttum skafrenningi

; font-size: 12px; ">Hlaup með skokkhópnum, ákvað að taka bara 10 km, náði að klára hringinn á 60 mín. sem ég er bara sáttur við miðað við aðstæður. því færið var nú ekkert sérstakt og frekar erfitt að hlaupa og þetta tók  vel í, það var yndislegt þegar þessari baráttu var lokið, en maður hafði aldeilis gott að þessu. Hlaupið var frá Ásvöllum, Ásbraut, Strandgata, Norðurbakki, Hrafnista, Skjólvangur, Hjallabraut, Dalshraun, Helluhraun, Drangahraun, Álfaskeið, Mánastígur, Tjarnarbraut, Lækjargata, Strandgata, Ásbraut, Ásvellir. fín leið þó það sé ekkert sérstakt að hlaupa í iðnaðarhverfunum. Mannbroddarinir komu sér vel í þessari ófærð, nokkuð vindasamt og éljagangur. Nú kom Ipodinn sér vel, hélt manni við efnið. 
; font-size: 12px; ">
Annars hef ég verið nokkuð duglegur og haldið mér við þær áætlanir sem ég setti mér í þessum mánuði. Þó að ég hefði mátt vera duglegur að blogga. tek betur við mér í Mars. Ætla að gera upp mánuðinn á morgun eða mánudag. Hafið það gott um helgina. 


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.02.2010 16:05:23 / hlynur75

En og aftur lengsta hlaupið :)

Fór á skokkæfingu með Haukahópnum, Var vel stemmdur og langaði aðeins að lengja hlaupið frá síðustu helgi, ég náði því og niðurstaðan var 19,63 km og mér vantar nú bara 1500 metra til þess  að klára hálfmaraþonið. Þannig að þetta er orðið raunhæft. Nú er það bara að halda sér við efnið og haldast meiðslafrír.
Hér er leiðin sem ég fór í dag. Nóg að brekkum og flott leið. 

Annars er nú ekki mikið að frétta. Allir á heimilinu hressir og kátir. 

En ég er bara sáttur við dagsverkið, var aðeins aumur í kálfunum, en annars fínn. 

» 0 hafa sagt sína skoðun

14.02.2010 12:10:05 / hlynur75

Flott æfingarvika að baki

Er verulega sáttur við þessa viku, hélt góðum dampi alla þessa viku og hef reynt að hreyfa mig eitthvað á hverjum degi, nú er ég búinn að hreyfa mig eitthvað 18 daga í röð sem er örugglega persónulegt met. 
Ég tók flott hlaup í gær og var það einnig mitt lengsta frá upphafi. þetta voru 18 km og ég er mjög sáttur við það. Hlaupið gekk vel og mér leið vel allan tímann. Fór með skokkhópnum, Leiðin sem við fórum varieitthvað á þessa leið. Frá Ásvöllum, upp Áslandsbrekkurnar, niður í Setbergið, út á Flóttamannaveginn í átt að Vílfilsstöðum, fórum þar út á malarstíg og komum að flötunum og fórum þar áfram og út í Sjálandshverfið og þaðan út á Hrafnistu, Norðurbakki, Strandgata, Ásbraut og að Ásvöllum. Flott leið sem hægt er að mæla með. En er með smá verk í hægra hnéinu, sem er kannski eðlilegt miðað við átökin í gær. :)

Nú tekur við ný vika og ég stefni ótröður áfram þessari vegferð og nýja lífstíll.Mikið líður mér  vel og langt síðan ég var í svona góðu formi. Ég er hress og kátur að vanda og er rétt að byrja. :)

Over and out.


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.02.2010 15:44:32 / hlynur75

Nýjar átaksmyndir

hérna koma nýjar myndir af kallinum, þetta var tekið um síðustu helgi. Ég er bara nokkuð sáttur, svona myndir hvetja mann áfram. :) og ég er hvergi nærri hættur.
Hérna koma myndirnar :)



» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6
Hlynur Halldórsson
Bara hinn hressasti gaur sem ætlar að komast í betra form. Finnst gaman að takast á við nýja hluti og áskoranir því lífið er svo stutt, þannig að best að lifa fyrir daginn í dag. Það er bara þannig.
Könnun
Tekst mér ætlunarverk mitt að klára Parísarmaraþonið 10.apríl 2011
Já, en sérð allt í móðu og veit ekki hvar þú er staddur í veröldinni
3 atkvæði

Já, brosandi og farinn að skipuleggja næsta maraþon.
3 atkvæði

Nei, bara allt og feitur og átt engan séns að klára þetta.
1 atkvæði

Nei, bara örmagnast.
0 atkvæði

Nei.
0 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 7
Könnun

Engin könnun í gangi, athugaðu aftur seinna.
Heimsóknir
Í dag:  15  Alls: 36954
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 642 dögum
Hálfmarathon sem ég ætla að taka þátt í og klára.
Dagatal
janúar - 2012
S M Þ M F F L
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728
293031
FyrriNæsti